
Javelin-tvífóturinn er gerður úr okkar bestu efnum og er stórt skref fram á við. Léttur tvífótur sem hægt er að festa á riffil á örskammri stund með aðferð sem Spartan hefur einkaleyfi á. Aðeins er þörf á einum tvífæti fyrir alla rifflana. Margs konar festingarmöguleikar eru í boði þannig að hægt er að breyta flestum rifflum svo hægt sé að festa tvífótinn á þá á nokkrum mínútum. Tvífóturinn kemur í kassa með festingarverkfærum til að hjálpa notandanum af stað.
Þetta er langa gerðin sem getur teygt sig allt frá 20,5 cm upp í 30 cm og er aðeins 25 cm löng samanpökkuð. Vegur aðeins 157 g.
- Hægt er að festa tvífótinn á flestar gerðir riffla
- Notandinn þarf aðeins einn tvífót fyrir alla rifflana sína
- Gerður úr bestu fáanlegu efnum, smíðaður úr 7075-málmblöndu
- Einstaklega sterkur
- Léttur
- Er í bakpokanum þar til þörf er á honum
- Hægt er að festa hann á á örskammri stund
- Innbyggður sniðhalli
- Innbyggður snúningur sem auðveldar að fylgja eftir skotmörkum á hreyfingu
- Framúrskarandi léttur veiðitvífótur
- Fætur sem hægt er að lengja
- Fætur úr gúmmí og volframkarbíði til að mæta ólíkum aðstæðum